Goddess


Ástin mín



Vinir

  • Bjössi H.
  • Dísa Skvísa
  • Erna Erlends
  • Eva Ruza
  • Harpa
  • Jóna
  • Kristján
  • Ragnheiður
  • Sibba
  • Signý
  • Sigurgeir


  • Heimasíðan mín



    Áhugaverðar síður

    Erna Kristjáns..............
    þriðjudagur, desember 28, 2004
    Vonandi höfðu allir það gott um jólin ........
    Svakalega voru jólin stutt og mér finnst eins og ég hafi ekki gert neitt......... Er nú reyndar að fara á jólaball eftir vinnu í dag með fjölskyldunni hans Björns, ætli ég verði ekki sett í það hlutverk að leika stúf........... hehehehhe, gæti alveg séð það fyrir mér eða ekki.................. Það er alltaf svo mikill gusugangur í mér að ég myndi bara hræða krakkana :o)


    Þetta erum við stelpurnar á góðum degi .......... Alltaf svo hressar .......




    Já og síðan verð ég að færa ykkur smá fréttir, Debbý vinkona á von á sér :o) Kominn heila 3 mánuði á leið :o) Til hamingju Debbý mín og auðvitað Gunni líka. Get ekki beðið eftir að sjá krílið sem kemur í júlí í heiminn :o)


    Þetta er Björn að bíða eftir Ernu sinni, greyið komið í pínu sjálfsheldu, því hann er að reyna að sækja maís handa Ernu sinni, því hann vill að hún verði dugleg að borða grænmetið sitt ;o)



    Hrikalegt að heyra um jarðskjálftan þarna í Asíu, ég varð alveg dauðhrædd um hann bróðir minn, því hann er einmitt í Kína núna. Sem betur fer var hann ekki á hættusvæðinu og því getur maður andað léttar. Er samt að pæla í að láta gott af mér leiða, því ég er svo góð og styrkja rauðakrossinn smá. Greyið fólkið hefur misst allt sitt, hugsum bara, hvað ef þetta gerðist hérna á okkar litla Íslandi, myndum við ekki vilja að einhver kæmi okkur til aðstoðar, það held ég nú, hættum að hugsa einungis um rassagtið á sjálfum okkur og reynum að láta gott af okkur leiða.

    En alla vega nóg um skammaræðu núna, held bara að ég sé svona pirruð,því ég er ekki búin að fá eina einustu einkunn og er ekki sátt.................. Mér gekk svo vel í prófunum og síðan fæ ég enga einkunn ............ hversu lengi á ég eiginlega að bíða...... sorry smá pirringur í mér, skil bara ekki af hverju þetta tekur svona langan tíma, þegar ég fór í fyrsta prófið undir lok nóv. og er ekkert búin að fá.........

    En alla vega er búin að skammast nóg og því ætla ég að setja fyndnar myndir sem ég fann inn, til að hressa ykkur aðeins eftir þennan pirring minn ...........

    Þetta er ég,þegar ég sé óvinur nálgast................ ranghvolfi bara augunum og reyni að láta mig hverfa



    Þetta svipurinn á Birni þegar hann áttar sig á að ég er kynskiptingur..............





    miðvikudagur, desember 22, 2004
    Gleðileg Jól -Öll sömul
    Hó hó hó...........


    Jæja ætla að byrja á því að óska öllu gleðilegra jóla ef ég skildi ekki blogga meira fyrir jólin, en geri það alla vega eftir jól og set inn jólamyndir auðvitað.
    Annars eigum við Björn minn eins árs trúlofunarafmæli á morgun, Þorláksmessu :o) Ætlum bara að fara út að borða annað kvöld og hafa það rólegt, hlusta á jólasöngvana á laugarveginum o.fl. Síðan verður sett upp jólatré-ið eins og vanalega á Þorláksmessu.



    Annars er ég búin að vera óhemju óheppinn upp á siðkastið, byrja á því í byrjun mánaðarins að ganga á glervegg í Kbbanka og já þið heyrðuð rétt, ég sá ekki bévítis glervegginn og gekk bara beint á hann og braut nýju fínu gleraugun mín, ekki gaman það. Ég skammaðist mín svo mikið fyrir þetta að ég þorði ekki að kíkja upp og gekk bara rakleitt út. Þegar út var komið sá ég að gleraugun mín höfðu brotnað og ég var með svona kúlu á nebbanum eftir gleraugun. Ég fór auðvitað strax með gleraugun í viðgerð en varð að vera með linsu og ég sá hvernig allir horfðu á litlu sætu kúluna mína, ekki gaman það..................... Já og síðan gerðist eitt fyrir mig hérna í vinnunni í gær en held því bara fyrir mig, sýnir bara að ég get verið stundum pínulítið seinheppinn. Herdís mín, ég held að svei mér þá að ég sé búin að taka við af þér ;o) Því ég veit ekki um meiri hrakfallabálk nema þá kannski Evu systir hennar Debbýjar hehehehhehehhehe. En svona lið eins og við sko, við kryddum upp á tilveruna ;o)

    Verð að nota tækifærið, því Kristján bróðir er úti í Kína: Kristján minn, gleðileg jól og njóttu ferðar þinnar til hins ítrasta. Mundu þú ert besti bróðir í heimi og hlakka til að fá þig til baka á klakan og dóttir þinni líka. Smá væmið en what the fuck.............


    Síðan smá svona í lokin, var að finna gamlan brandara (sem er pínulítið klúrin) en ég fer að hætta þessu, verð bara að setja þennan inn, finnst hann svo fyndin.............




    Reglur svefnherbergis golfs, hummmmmmmmmmmm:



    1. Hver leikmaður skal leggja til eigin útbúnað til leiksins, venjulega eina kylfu og tvær kúlur.

    2. Leikur á vellinum verður að vera samþykktur af eiganda holunnar.

    3. Ólíkt golfi utandyra, er takmarkið að koma kylfunni í holuna og halda kúlunum frá.

    4. Fyrir árangursríkan leik, skal kylfan hafa stíft skaft. Vallareigandum er leyfilegt að kanna stífni skaftsins áður en leikur hefst.

    5. Vallareigendur hafa full réttindi til að banna kylfulengd til að forðast skemmdir á holunni.

    6. Takmark leiksins er að taka eins mörg skot og nauðsyn þykir þangað til fullnægjandi leik er náð. Ef úrskeðis fer getur það valdið banni til að leika aftur.

    7. Það er álitið slæmt leikform að byrja leik í holu strax eftir komu. Reyndir leikmenn taka venjulega tíma í að dást að öllum vellinum, með sérstakri áherslu á vel lagaða hóla og sandgryfjur.

    8. Leikmenn eru varaðir við að minnast á aðra velli sem þeir hafa spilað á eða þá sem þeir eru að spila á við eiganda vallarins sem spilað er á. Eigendum í uppnámi hefur verið vitað til þess að valda skemmdum á búnaði leikmanns fyrir þessar sakir.

    9. Leikmönnum er ráðlagt að hafa almennilegan regnbúnað meðferðis, til vara.

    10. Leikmenn skulu ekki gera ráð fyrir að völlurinn sé alltaf í ástandi til að leikið sé á honum. Leikmenn gætu farið hjá sér ef að þeir komast að því að völlurinn er í tímabundinni viðgerð. Leikmönnum er ráðlagt að vera einkar gætnir undir þessum aðstæðum. Reyndari leikmenn munu finna breytilegar aðferðir þegar svona stendur á.

    11. Leikmenn skulu gera ráð fyrir að leikurinn sé almennilega áætlaður sérstaklega þegar leikið er á nýjum velli í fyrsta skipti. Fyrrum leikmenn er vitað til að verða pirraðir ef að þeir uppgötva að einhver annar er að leika á það sem þeir hafa álitið einkavöll.

    12. Eigandi vallarins er ábyrgur fyrir vexti runna, sem geta dregið úr sjáanleika holunnar.

    13. Leikmönnum er sterklega ráðlagt að fá leyfi eigandans áður en reynt er að leika á bakhlutanum.

    14. Hvatt er til hægs leiks, samt sem áður skulu leikmenn vera viðbúnir við að leika á meiri hraða eftir óskum eiganda.

    15. Það er álitinn framúrskarandi árangur , ef tími gefst til, að leika á sömu holu nokkrum sinnum í einum leik.




    miðvikudagur, desember 08, 2004
    Rakst á eitt fyndið á netinu..........
    Jæja var aðeins að flækjast á netinu og auðvitað fann ég eitthvað fyndið eins og vanalega að mínu mati. Alla vega þá fann ég þetta sem ég set inn á einni bloggsíðu sem ég rakst á og verð ég einfaldlega að deila þessu með ykkur. Þar sem við konur erum svo miklir snillingar og karlmenn geta ekki án okkar verið :o)

    Hvers vegna eru (Hannesar)karlmenn gáfaðri meðan þeir hafa mök?

    Vegna þess að þeir eru tengdir við snilling!


    Hvers vegna hrjóta karlmenn þegar þeir liggja á bakinu?

    Vegna þess að pungurinn fellur yfir rassgatið og stöðvar gegnumtrekkinn!


    Hvers vegna skapaði Guð manninn á undan konunni?

    Þú þarft jú gróft uppkast áður en þú gerir lokaútgáfuna!


    Hvers vegna setti Guð karlmanninn á jörðina?

    Vegna þess að titrari slær ekki garðinn!