Erna Kristjáns..............

Jæja, nú þarf ég að fara að taka til á eftir, því Björn minn á afmæli á morgun. Jamm þið heyrðuð rétt, kallinn er að verða 28 ára.................. spurning um að fara að yngja aðeins upp hehehehehe :) Nei, það myndi ég aldrei gera, elska þennan alltof mikið.
Ég var ekkert smávegis lengi að finna gjöf í ár, var kominn með hugmynd eftir afmælið hans í fyrra en auðvitað gleymdi ég henni á öllum þessum tíma. Síðan loksins fann ég svolítið sem ég vona að sé sniðugt og honum líkar vel.
Ætli ég verði bara ekki að vera húsmóðirsleg í kvöld og fari að baka eitthvað........ Ef það klúðrast þá redda ég mér bara og fer í bakaríið.........