Erna Kristjáns..............

Jæja þá er það komið á hreint hverjir keppa í tveggja manna úrslitum í
Contender, þ.e.
Peter (minn maður) og síðan
Sergio. Sergio má ekki vinna þetta, þá fer ég að grenja.......... Ég er að meina það, ég fer eflaust að grenja, því ég verð svo tens að horfa á þetta. Mér finnst Peter miklu betri en Sergio enda bardaginn milli hans og Alfonso, hrein snilld, sem var í síðustu viku. Aftur á móti fannst mér bardaginn í gær (sem Sergio var í) hundleiðinlegur enda er drengurinn sá ekkert í uppáhaldi hjá mér, veit ekki af hverju. Gæti kannski verið af því að mér finnst Sergio vera pínulítill egó-isti (sýndi það smá í gær), því hann hefur engum bardögum tapað hingað til. Hann var eitthvað að gorta sig og gefa slönghljóð frá sér til að stuða andstæðing sinn. Sergio er kallaður slangan, veit ekki alveg af hverju, ef einhver veit það, þá má hann/hún endilega segja mér það. Aftur á móti hefur Peter tapað einum bardaga en það skiptir engu máli, því ég hef fulla trú á honum og bíða eftir næsta Contendor þætti sem verður eftir viku, meira að segja tvöfaldur þáttur.
Nú haldið þið að ég haldi bara með Peter af því hann er sætur, en
NEI það er ekki málið............... Mér finnst hann ekkert sætur með sitt margbrotnanef sem er orðið eins og pönnukaka. Hann er einfaldlega bara snilldar boxari........