Erna Kristjáns..............
Jæja, nú er langt síðan ég bloggaði síðast. Ég hef bara verið að setja inn brandara og svoleiðis, bara svo eitthvað komi frá mér. Það er mest lítið að frétta af mér, ég er bara búin að vera að vinna og læra út í eitt enda orðin pínulítið þreytt en ég er svo mikil kraftakerling að ég harka þetta af mér :o)
Nú er ég að fara að kenna samfélagsfræði í
7, 8, 9 og 10 bekk í Breiðholtsskóla frá
18. okt til 17. nóv. Það verður nú gaman, trúi ekki öðru. Við verðum tvær að kenna, ég og Ellý. Við erum búnar að sitja sveittar yfir því að búa til skemmtilega kennsluáætlun og ég held svei mér þá að það hafi bara tekist :o) Þess vegna er ég bara orðin spennt að komast að kenna :o)
Síðan verð ég að monta mig aðeins, ég er búin að vera svo dugleg í ræktinni að ég er búin að ná af mér
5 kílóum, hvorki meira né minna enda orðin hazarkroppur hehehhe....... Reyndar langt í það ennþá en þetta smá hjakkast af manni, vonandi......... Ætla að reyna að ná mér svona grannri eins og ég var þegar ég var í útskriftarferðinni hehehehe. Maður má nú alveg lifa í voninni :o)
Annars erum við Björn að fara út í næsta mánuði með vinnunni minn, gaman, gaman segi ég nú bara. Þetta er óvissuferð, vitum ekkert hvert við erum að fara. Það eina sem við vitum er að við eigum að taka evrur með okkur og landið er ca. 3-3:30 tími frá Íslandi. Okkur verður tilkynnt hvert förinni er heitið þegar við erum kominn um borð. Hljómar ekkert smávegis spennandi og auvitað læt ég mig ekki vanta á þetta :o)
Síðan er ég að fara á
Edith Piaff næstu helgi með Birni mínum :o) Ég er búin að bíða lengi eftir að komast á sýninguna enda fékk ég að heyra söng hennar í hverjum einasta frönsku tíma í
Verzló. Við vorum síðan alltaf látin syngja lögin með henni og á ég eflaust eftir að láta eitthvað í mér heyra :o) Reyndar hefur Björn heyrt mig syngja á frönsku og var hann fljótur að setja eyrnartappa í eyrum hehehehehhe...... Nei ég segi bara svona, hann hlustaði auðvitað á mig :o)
Að lokum nokkrar skemmtilegar myndir:
Ég á Ítalíu fyrir uhummm 5 árum síðan...... Svakalega er maður orðin gamall, finnst bara eins og það séu mesta lagi 2-3 ár.
Ég og Björn í Bjarnarhöfn :o) Ég eitthvað að tjá mig eins og vanalega :o)
Ég, Herdís og Björn í Húsafelli að skemmta okkur :o)
Herdís hress að vanda og farin að sýna smá danstakta :o)
Herdís og Birkir í banastuði :o)
Ég búin að stela kúrekahattnum hans Gumma (skilaði honum síðan aftur til hans) og sit róleg í kjöltu Björns míns
Erna kúlustelpa og Björn kúlustrákur :o)
Megabeiburnar Ragnheiður & Erna E. hressar eins og vanalega :) Ef maður vissi ekki betur, þá héldi maður að þær væri síamstvíburar því þær eru alltaf samvaxnar við haus heheheheheheh :)
Mynd tekin af mér og Evu, þegar við stelpurnar vorum að gæsa hana. Eva flott í magadansabúningnum sínum :o)
Þessi mynd var tekin af mér, Helgu og Valgerði þegar Helga og Sveppi voru að gifta sig :o) Sem minnir mig á það að ég á alltaf eftir að láta Helgu fá myndir af gæsuninni hennar...... Verð að mun að gera það næst þegar ég hitti hana
Björn og Gérard Depardieu
Debbý hress að vanda :o)
Svona hazarkroppur langar mér að vera líkt og Debbý er..........
Sætar systur, Eva Ruza og Debbý
Ein dúllumynd af okkur skötuhjúunum í lokin :o)